Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. mars 2024 15:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eyþór fór á kostum er hann sýndi frá hóteli Blika í æfingaferðinni
Eyþór Aron Wöhler.
Eyþór Aron Wöhler.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Meistaraflokkur karla hjá Breiðabliki er þessa stundina í æfingaferð á Alicante-svæðinu á Spáni.

Það hefur verið til fyrirmyndar að fylgjast með Blikum á samfélagsmiðlum síðustu daga, hvort sem það er á TikTok eða á Instagram.

Arnar Laufdal Arnarsson, leikmaður Augnabliks, fylgdi liðinu út og hefur hann verið að gefa stuðningsmönnum sem og öðrum innsýn í æfingaferðina á samfélagsmiðlum.

Í dag var birt skemmtilegt myndband á samfélagsmiðlum Blika þar sem Eyþór Aron Wöhler, sóknarmaður liðsins, sýnir frá hóteli liðsins á Spáni. Hót­elið sem um ræðir er La Finca Resort sem er fimm stjörnu hót­el en það eru frábærar aðstæður til fótboltaiðkunnar.

Eyþór fer á kostum í þessu mjög svo fyndna myndbandi og fær liðsfélaga sína til dæmis í eftirhermur. Viktor Karl Einarsson tekur Gumma Ben og Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliðinn, tekur sjálfan Borat einstaklega vel.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan, óhætt að mæla með því.



Athugasemdir
banner
banner