Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 06. mars 2011 15:53
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Dirk Kuyt: Besta tilfinning á ævi minni
Kuyt skorar annað markið sitt í dag.
Kuyt skorar annað markið sitt í dag.
Mynd: Getty Images
,,Að skora þrennu gegn United er besta tilfinning á ævi minni," sagði Dirk Kuyt eftir að hann skoraði öll mörk Liverpool í 3-1 sigri á Manchester United.

Kuyt skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og einu sinni í þeim síðari þegar hann fylgdi eftir aukaspyrnu frá Luis Suarez.

,,Ég verð að þakka Luis Suarez því hann spilaði frábærlega í dag og lagði upp tvö af þessum þremur mörkum. Þetta voru nokkuð auðveld mörk, ég var vanur að skora svona mörg þegar ég spilaði sem framherji í Hollandi."

Liverpool tapaði gegn West Ham um síðustu helgi en liðið lék mun betur í dag.

,,Við sýndum að við getum staðið okkur vel gegn þeim bestu en við verðum líka að standa okkur gegn öðrum liðum."

,,Þetta voru vonbrigði gegn West Ham í síðustu viku en vonandi komumst við aftur á skrið í kjölfarið á sigrinum í dag."

banner
banner