Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. júlí 2013 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Inside Spanish Football 
Liverpool og Spurs keppast um Soldado - Kostar 30 milljónir
Mynd: Getty Images
Liverpool og Tottenham Hotspur eru í samkeppni um Roberto Soldado, 28 ára sóknarmann Valencia.

Valencia vill ekki selja leikmanninn svo líklegt er að annað hvort félagið bjóði 30 milljónir evra í leikmanninn sem er með kaupréttsákvæði í samningi sínum.

Ef annað hvort Liverpool eða Tottenham ákveða að kaupa leikmanninn mun Valencia þurfa að vaða beint út í leikmannamarkaðinn.

,,Við erum með plan B fyrir hvern einasta leikmann," sagði Braulio Vazquez, yfirmaður íþróttamála hjá Valencia, þegar hann var spurður út í hvernig félagið myndi leysa úr sölu Soldado.
Athugasemdir
banner
banner
banner