Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 01. desember 2004 15:02
Magnús Már Einarsson
Zlatan nýjasti tengdasonur Íslands!
Tinna og Zlatan.  Myndin af Tinnu er fengin af ungfruisland.is.
Tinna og Zlatan. Myndin af Tinnu er fengin af ungfruisland.is.
Mynd: Magnús Már Einarsson
Zlatan Ibrahimovic framherji Juventus og sænska landsliðsins er ástfanginn af íslensku fegurðardrottningunni Tinnu Alavis en þetta kemur fram í fjölmiðlum í Svíþjóð í dag. Zlatan hitti Tinnu eftir landsleik Íslendinga og Svía 13.október síðastliðinn og féll hann strax fyrir henni.

Zlatan mun hafa boðið Tinnu til Ítalíu og eru þau mjög ástfangin af því er fram kemur í fjölmiðlum í Svíþjóð í dag.

Tinna, sem er 19 ára, spilaði sjálf fótbolta með Austra á Eskifirði á sínum yngri árum en hún varð önnur í Ungfrú Ísland á síðasta ári og þá komst hún í úrslit í Queen of the world keppninni.

Fótbolti.net hafði samband við Tinnu en hún hafði þetta að segja ,,Ég vil ekki tjá mig um þetta mál."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner