Manchester Evening News segir að Manchester United bindi vonir við að kaupa James Maddison, sóknarmiðjumann Leicester, næsta sumar.
Maddison hefur byrjað tímabilið vel en hann hefur einnig verið orðaður við Manchester City og Liverpool.
Maddison var í enska landsliðshópnum í liðnum landsliðsglugga en var ónotaður varamaður í sigurleikjunum gegn Búlgaríu og Kosóvó.

Manchester Evening News segir að United vonist til að Marcus Rashford og Jesse Lingard hjálpi til við að sannfæra Maddison.
Maddison er samningsbundinn Leicester til 2023 en liðið hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni. Liðið þyrfti að ná Evrópusæti til að eiga betri möguleika á að halda Maddison.
Athugasemdir