Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. október 2019 19:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reyndir leikmenn Man Utd sagðir óvissir með þjálfara sinn
Kieran Mckenna situr lengst til vinstri.
Kieran Mckenna situr lengst til vinstri.
Mynd: Getty Images
Erfiðlega gengur að finna netmöskvana.
Erfiðlega gengur að finna netmöskvana.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Staða Kieran McKenna hjá Manchester United er skoðuð í dag í breskum fjölmiðlum. McKenna er einn af aðstoðarmönnum Ole Gunnar Solskjær, stjóra liðsins.

Daily Mail greinir frá því að einhverjir reynslumiklir leikmenn í liði United séu ekki alveg vissir með það sem McKenna lætur þá gera.

McKenna hefur séð um æfingar liðsins síðan Solskjær tók við og leikmenn segjast illa undirbúnir fyrir komandi andstæðinga sína út af æfingum Norður-Írans.

United liðið hefur einungis unnið tvo leiki af átta á tímabilinu og gengið illa að skora í leikjum sínum.

McKenna var áður í akademíunni hjá félaginu og tengir vel við yngri leikmenn en þeir eldri eru ekki að kaupa hugmyndafræði McKenna.

United hefur einungis skorað eitt mark í síðustu fjórum leikjum sínum í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner