Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. mars 2024 13:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rooney: Vona að Rashford bæti markametið mitt
Mynd: Getty Images

Wayne Rooney fyrrum framherji Manchester United vonast til að Marcus Rashford muni bæta markametið sitt.


Rooney er markahæstur í sögu Man Utd en hann skoraði 253 mörk á sínum tíma. Rashford skoraði 130. mark sitt fyrir félagið áðan þegar hann kom United í 2-0 með marki af vítapunktinum gegn Everton.

Rooney er sérfærðingur hjá TNT yfir leiknum en hann tjáði sig um Rashford fyrir leikinn.

„Hann er í forréttindastöðu að spila fyrir Manchester United. Ég hef sagt þetta áður, hann er einn af þeim leikmönnum sem ég trúi að muni bæta markametið mitt," sagði Rooney.

„Ég vona að hann geri það því hann er Manchester maður út í gegn en hann þarf að finna stöðugleika. Hann hefur ekki átt sitt besta tímabil."


Athugasemdir
banner
banner
banner