Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   sun 10. maí 2026 09:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Góðar fréttir fyrir PSG
Mynd: EPA
Achraf Hakimi, leikmaður PSG, var ekki með liðinu í seinni leiknum gegn Bayern í undanúrslitum Meistaradeildarinnar vegna meiðsla.

Óvíst var hversu alvarleg meiðslin væru en franski miðillinn RMC greinir frá jákvæðum fréttum.

Samkvæmt heimildum RMC er bjartsýni í herbúðum PSG á að Hakimi verði klár í slaginn fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Arsenal sem fram fer þann 30. maí á Puskas Arena í Ungverjalandi.

PSG á þrjá leiki eftir í frönsku deildinni en liðið hefur ekki tryggt sér titilinn. Liðið er þremur stigum á undan Lens og á leik til góða.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner