Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. mars 2024 17:06
Elvar Geir Magnússon
Hákon hélt hreinu með Brentford B
Hákon Rafn Valdimarsson var keyptur til Brentford í janúar.
Hákon Rafn Valdimarsson var keyptur til Brentford í janúar.
Mynd: Brentford
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson varði mark varaliðs Brentford þegar það mætti varaliði Rangers í æfingaleik í dag.

Þetta var fyrsti leikur hans fyrir Brentford B og hann hélt hreinu í 2-0 sigri gegn skoska liðinu.

Hákon mun að öllum líkindum verja mark Íslands í umspilsleiknum gegn Ísrael sem verður í Búdapest á fimmtudaginn í næstu viku.

Þessi 22 ára leikmaður gekk í raðir Brentford frá Elfsborg í janúarglugganum. Hann hefur enn ekki verið í leikmannahópi aðalliðsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner