Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. mars 2024 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Marco Silva: Allir innan félagsins vilja halda Adarabioyo
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tosin Adarabioyo hefur verið að gera frábæra hluti í hjarta varnarinnar hjá Fulham undanfarnar vikur og vill Marco Silva þjálfari alls ekki missa hann burt frá félaginu í sumar.

Adarabioyo er 26 ára gamall en rennur út á samningi í sumar. Það eru ýmis félög sem hafa sýnt honum áhuga og er hann einnig með endurbætt samningstilboð frá Fulham á borðinu.

Adarabioyo hefur tíma til að taka lokaákvörðun og segist einungis vera einbeittur að því að klára tímabilið vel með Fulham.

„Það væri frábært að framlengja við hann, við erum með þrjá leikmenn sem eru að verða samningslausir en við viljum halda hjá okkur. Fyrir utan Tosin þá erum við líka með Bobby Reid og Kenny," segir Silva og er þá að tala um Bobby Decordova-Reid og Kenny Tete sem eiga aðeins nokkra mánuði eftir af samningi.

„Kenny er með ákvæði í samningnum sem við getum virkjað til að halda honum hjá okkur, en hinir ekki. Þetta eru mikilvægir leikmenn fyrir félagið og þá sérstaklega Tosin. Við erum að gera okkar besta til að semja við hann og vonandi fæ ég uppfærslu um framvindu mála sem fyrst. Allir innan félagsins vilja halda honum hérna."

   14.03.2024 20:25
Fulham reynir að halda í Adarabioyo

Athugasemdir
banner
banner