Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 18. mars 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Gakpo spilar leikinn eins og hann sé í hægri endursýningu"
Cody Gakpo.
Cody Gakpo.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, var ekki sáttur með Hollendinginn Cody Gakpo eftir tap gegn Manchester United í FA-bikarnum í gær.

Gakpo kom inn á sem varamaður seint í leiknum en náði ekki að hafa mikil áhrif á leikinn.

Hann átti ekki flotta frammistöðu og fór illa með eina frábæra stöðu til að ganga frá leiknum. Carragher var ekki sáttur við Hollendinginn í leikslok en Gakpo fékk einnig mikla gagnrýni frá stuðningsmönnum Liverpool á samfélagsmiðlum.

„Frábær úrslit fyrir Man Utd en Liverpool getur bara sjálfum sér um kennt," sagði Carragher. „Við skoruðum þrjú mörk en sóknarlínan var samt léleg."

„Gakpo spilar leikinn eins og hann sé í hægri endursýningu," sagði Carragher jafnframt og vildi greinilega sjá hlutina gerast hraðar hjá Gakpo.


Athugasemdir
banner