Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   þri 19. apríl 2022 22:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neville miður sín - „Hef aldrei séð þetta svona slæmt"
Staðan er nokkurn veginn svona akkúrat núna.
Staðan er nokkurn veginn svona akkúrat núna.
Mynd: Skjáskot
Gary Neville, fyrrum varnarmaður Manchester United, segir að botninum sé náð hjá sínu gamla félagi.

United tapaði 4-0 gegn erkifjendunum í Liverpoool í kvöld, og átti aldrei möguleika. Það er mikið vonleysi yfir Man Utd þessa stundina; liðið er að spila afskaplega illa.

„Ekki einn stuðningsmaður Man Utd bjóst við að fá eitthvað úr þessum leik," sagði Neville á Sky Sports eftir leik.

„Ég get eiginlega ekki útskýrt hvernig þetta fór úr því að enda ágætlega á síðasta tímabili - þegar þeir voru í öðru sæti - yfir í þetta. Núna er botninum náð. Ég hef aldrei séð þetta svona slæmt. Þegar ég var að spila, þá var Liverpool ekki alltaf með frábært lið en þeir gerðu þetta aldrei svona auðvelt fyrir okkur."

„Þessir leikmenn United eru búnir að sanna að þeir eru ágætis leikmenn en þeir eru brotnir og þeir eru búnir."
Athugasemdir
banner
banner