Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. mars 2024 10:25
Elvar Geir Magnússon
Búdapest
Lykilmaður Úkraínu snýr aftur fyrir leikinn gegn Íslandi
Icelandair
Mynd: Getty Images
Viktor Tsygankov miðjumaður úkraínska landsliðsins tók fullan þátt í æfingu liðsins í gær. Yfir því kætast stuðningsmenn Úkraínu en Tsygankov gat ekki spilað umspilsleikinn gegn Bosníu vegna meiðsla í hné.

Hann er hinsvegar orðinn klár í slaginn að nýju og ætti að geta spilað á þriðjudagskvöld, úrslitaleikinn gegn okkur Íslendingum sem fram fer í Wroclaw í Póllandi.

Tsygankov er 26 ára og spilar á hægri vængnum með Girona í La Liga. Hann getur einnig spilað sem sóknarmiðjumaður.

Hann hefur skorað alls ellefu mörk í 50 landsleikjum fyrir Úkraínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner