Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 29. mars 2024 14:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp um Alonso: Skil að hann vilji vera áfram
Mynd: EPA

Xabi Alonso tilkynnti í dag að hann muni vera áfram hjá Leverkusen á næstu leiktíð en hann var m.a. sterklega orðaður við Liverpool.


Jurgen Klopp mun yfirgefa Liverpool í sumar en hann greindi frá því fyrr í vetur en hann hefur náð frábærum árangri með liðið.

Alonso hefur náð stórkostlegum árangri með Leverkusen en Klopp skilur ákvörðun Alonso.

„Hann er að gera frábæra hluti þarna. Þeir eru með frábært lið og munu sennilega halda þessu liði. Ég skil að hann vilji vera áfram. Ég hef ekkert meira um þetta að segja," sagði Klopp.

Liverpool mun snúa sér að Ruben Amorim stjóra Sporting ef marka má nýjustu fregnir.


Athugasemdir
banner