Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 23. febrúar 2011 12:16
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Joe Cole: Ákveðinn í að standa mig vel hérna
Mynd: Getty Images
Joe Cole er ákveðinn í að sanna sig hjá Liverpool eftir erfiða byrjun hjá félaginu.

Cole kom frítt til Liverpool frá Chelsea síðastliðið sumar en hann hefur ekki náð sér á strik í vetur þar sem meiðsli hafa meðal annars sett strik í reikninginn.

,,Þetta hefur ekki farið eins og ég hefði viljað en svona er lífið. Svona hlutir gerast og þú verður að ganga í gegnum erfiða tíma," sagði Cole.

,,Ég hef átt mikið af góðum tímum á ferlinum og ég hef líka farið í gegnum erfiða tíma en ég mun alltaf komast í gegnum þá."

,,Ég er ákveðinn í að standa mig vel hérna. Ég legg hart að mér alla daga. Aðalastriðið er félagið, þetta snýst allt um Liverpool."

,,Ég er ánægður með að gengi liðsins hefur snúist við og við erum á leið í rétta átt. Ef að Liverpool getur haldið svona áfram þá vil ég gjarnan vera hluti af því."

banner
banner