Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 16. janúar 2016 16:50
Fótbolti.net
Einkunnir úr Ísland-SAF: Ingvar bestur
Stóð sig með prýði í dag
Stóð sig með prýði í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið tapaði fyrir Sameinuðu arabísku furstadæmunum í vináttuleik í Dubai í dag.

Viðar Örn Kjartansson kom Íslandi yfir snemma leiks en í kjölfarið tóku heimamenn öll völd á vellinum og höfðu að lokum 2-1 sigur.

Ingvar Jónsson var besti maður Íslands í leiknum og er maður leiksins samkvæmt einkunnagjöf Fótbolta.net. Rúnar Már Sigurjónsson og Viðar Örn voru sprækastir af útileikmönnunum og fá sömu einkunn og Ingvar.

Ingvar Jónsson - 7
Komst vel frá sínu. Varði nokkrum sinnum vel og átti ekki sök á mörkunum. Bjargaði Íslandi frá stærra tapi.

Andrés Már Jóhannesson - 6
Kraftmikill til að byrja með en dró af honum þegar á leið. Frábær fyrirgjöf þegar Viðar Örn skoraði.

Ragnar Sigurðsson - 5
Kom boltanum ágætlega frá sér en leit stundum illa út varnarlega.

Kári Árnason - 5
Samvinna Kára og Ragnars var ekki jafn góð og við eigum að venjast. Litu illa út í fyrra markinu.

Kristinn Jónsson - 4
Átti að gera betur í hreinsuninni þegar heimamenn skoruðu sigurmarkið. Var í vandræðum varnarlega.

Rúnar Már Sigurjónsson - 7
Var fyrirferðamikill á miðjunni. Duglegur að vinna til baka og sömuleiðis virkur í sóknarleiknum.

Emil Pálsson - 4
Fann sig ekki og var tekinn útaf í hálfleik.

Elías Már Ómarsson - 6
Kom að undirbúningi marksins og hljóp mikið. Átti að gera betur í upplögðu marktækifæri í upphafi síðari hálfleiks.

Arnór Ingvi Traustason - 5
Tókst ekki að fylgja á eftir góðri frammistöðu gegn Finnum. Komst lítið sem ekkert í boltann.

Eiður Smári Guðjohnsen - 6
Virkaði þreyttur eftir að hafa spilað 90 mínútur gegn Finnum á miðvikudag. Var lítið í boltanum en sýndi snilldar tilþrif þegar hann lagði upp dauðafæri fyrir Elías Má.

Viðar Örn Kjartansson - 7
Kominn á blað með landsliðinu og var mjög sprækur í byrjun leiks. Fékk úr litlu að moða eftir markið.

Varamenn

Björn Daníel Sverrisson - 6
Skilaði sínu á miðjunni án þess að vera áberandi eftir að hafa komið inná í hálfleik.

Þórarinn Ingi Valdimarsson - 5
Bætti engu við eftir að hann kom inná og kom boltanum illa frá sér.

Matthías Vilhjálmsson - 5
Náði ekki að fríska upp á sóknarleikinn.

Aðrir spiluðu of lítið.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner