Sky Sports heldur því fram að Bournemouth sé búið að bjóða 17 milljónir punda í kólumbíska landsliðsmanninn Jefferson Lerma.
Lerma er 23 ára gamall og var einn af bestu mönnum Kólumbíu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Lerma spilar fyrir Levante í spænska boltanum og yrði seldur fyrir metfé þar á bæ. Hann er djúpur miðjumaður að upplagi en getur einnig spilað sem hægri bakvörður.
Sky telur líklegt að samkomulag náist milli allra aðila en félagaskiptin velti alfarið á því hvort Lerma fái atvinnuleyfi á Englandi.
Bournemouth er einnig í viðræðum um kaup á Diego Rico, spænskum vinstri bakverði Levante.
Athugasemdir