Vináttuleikur Íslands og Kanada hefst klukkan 18:05 á Laugardalsvelli. Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér að neðan.
Við minnum ykkur á að "refresh" en það er hægt að gera með því að ýta á F5 takkan á lyklaborðinu.
Við minnum ykkur á að "refresh" en það er hægt að gera með því að ýta á F5 takkan á lyklaborðinu.
94. mín Leik lokið, niðurstaðan 1-1.
89. mín Kristján Örn fékk gult spjald
85. mín Eyjólfur gerir tvær breytingar, útaf fóru Ívar Ingimarsson og Emil Hallfreðsson og í þeirra stað komu Kristjáns Örn Sigurðsson og Veigar Páll Gunnarsson.
80. mín Davíð Þór Viðarsson er kominn inná í sínum fyrsta A landsleik, útaf fór markaskorarinn Gunnar Heiðar.
74. mín 1-1, það var varamaðurinn Oliver Occean sem skoraði eftir að Fjalar varði út í teiginn eftir skot frá Stalteri.
71. mín Kanada menn gera breytingu á sínu liði, Tomasz Radzinski fór útaf og Nik Ledgerwood kom inná.
70. mín Íslendingar fengu góða sókn, Helgi Sigurðsson átti fyrst skot að marki sem markvörður Kanda varði út í teiginn þar sem Emil var en hann skaut í varnarmann Kanada.
69. mín Helgi Sigurðsson er komin inná fyrir Brynjar Björn. Þetta er 100 landsleikur Helga. Ívar Ingimarsson er kominn með fyrirliðabandið.
65. mín 1-0, Gunnar Heiðar fékk sendingu frá Baldri Aðalsteinssyni og afgreiddi vel.
64. mín Hjálmar fékk aðeins að vera með bandið í eina mínútu, Brynjar Björn er komin með bandið.
63. mín Hjálmar Jónsson kemur inn fyrir Hermann Hreiðarsson og Hjálmar tekur fyrirliðabandið.
60. mín Kanada menn gera breytinu, Oliver Occeanleikmaður Lilleström kemur inná í stað fyrir Iain Hume leikmann Leicester
56. mín Gunnar Heiðar geystist upp hægri kantinn eftir að hafa fengið sendingu inn fyrir vörn Kanada, hann gaf fyrir markið þar sem Emil var en hann náði ekki að koma skoti að marki Kanada.
54. mín Gunnar Heiðar var nálægt því að sleppa í gegn en varnarmenn Kanada náðu að bjarga á síðustu stundu.
51. mín Kári Árnason átti gott skot að marki sem markvörður Kanada varði.
50. mín Jóhannes Karl tók aukaspyrnu af um 30 metra færi en skaut yfir.
45.mín Síðari hálfleikurinn er hafinn. Fjalar Þorgeirsson kemur inn í stað Daða sem stóð vaktina vel í fyrri hálfleik.
45. mín Flautað hefur verið til hálfleiks. Leikurinn hefur verið jafn og engin hættuleg færi hafa litið dagsins ljós í dag.
36. mín Grétar Rafn vann boltann í vörninni og geystist upp hægri kantinn hann átti góða sendingu inn fyrir á Gunnar Heiðar sem náði að komast upp að endamörkun en náði ekki að koma sendingunni fyrir.
30. mín Issey Farran leikmaður Kanada átti gott skot að marki fyrir utan teig en Daði Lárusson varði vel.
27. mín Brotið var á Emili Hallfreðssyni fyrir utan teig, Jóhannes Karl tók aukaspyrnuna en hún fór beint í vegginn.
24. mín Fátt markvert er að gerast en vörn Íslands hefur haldið vel og ekki gefið nein færi á sér.
14. mín Kári Árnason á skot að marki en yfir fór boltinn,
10. mín Leikurinn er frekar jafn en ekkert hættulegt færi hefur litið dagsins ljós.
2. mín Emil Hallfreðsson á gott skot að marki en markvörður Kanada ver í horn. Jóhannes Karl tók spyrnuna, Brynjar Björn skallaði en markvörður Kanada varði.
1. mín Flautað hefur verið til leiks.
Byrjunarliðið:
Daði Lárusson
Grétar Rafn - Ívar Ingimarsson - Ragnar Sigurðsson - Hermann
Kári Árnason
Brynjar Björn Gunnarsson - Jóhannes Karl Guðjónsson
Baldur Aðalsteinsson - Gunnar Heiðar - Emil Hallfreðsson
Grétar Rafn - Ívar Ingimarsson - Ragnar Sigurðsson - Hermann
Kári Árnason
Brynjar Björn Gunnarsson - Jóhannes Karl Guðjónsson
Baldur Aðalsteinsson - Gunnar Heiðar - Emil Hallfreðsson
Athugasemdir


