Þátturinn „Íþróttafólkið okkar" er á dagskrá RÚV í kvöld klukkan 21:30 en þar er meðal annars birt gamalt innslag í tímavélinni.
Á Facebook síðu RÚV hefur verið birt brot úr þætti kvöldsins.
Á Facebook síðu RÚV hefur verið birt brot úr þætti kvöldsins.
Þar má sjá um tuttugu ára gamalt innslag af því þegar leikmenn ÍBV tóku lagið magnaða „komum fagnandi."
Ívar Bjarklind syngur lagið en á trommunum er enginn annar en Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari.
Til gamans má geta að Leifur Geir Hafsteinsson, sem var leikmaður ÍBV á þessum tíma, samdi lagið og spilar á gítar í myndbandinu. Steingrímur Jóhannesson heitinn spilar er einnig á bassa í laginu en hann raðaði inn mörkum með ÍBV á sínum tíma.
Hér að neðan má sjá myndbandið.
Athugasemdir