Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. mars 2024 12:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man City horfir til Paqueta og Pedro Neto
Mynd: Getty Images
Pedro Neto, vængmaður Wolves og Lucas Paqueta miðjumaður West Ham eru orðaðir við Manchester City í enskum fjölmiðlum í dag.

Það er greint frá því að Manchester City og Liverpool muni berjast um að næla í Pedro Neto en hann hefur spilað 23 leiki skorað þrjú mörk og lagt upp ellefu í öllum keppnum á þessu tímabili.

Þá er einnig talað um að City ætli áfram að reyna við Lucas Paqueta ef Bernardo Silva yfirgefi Etihad eftir tímabilið.

Paqueta var nálægt því að ganga til liðs við City síðasta sumar en félagið hætti við á síðustu stundu eftir að leikmaðurinn var sakaður um veðmálasvindl.


Athugasemdir
banner
banner
banner