Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 13:13
Brynjar Ingi Erluson
Olise í hóp með Sancho
Michael Olise
Michael Olise
Mynd: EPA
Franski vængmaðurinn Michael Olise komst í fámennan hóp með sigurmarki sínu í 1-0 sigri Bayern München á Wolfsburg í gær.

Olise hefur tekið þýsku deildina með stormi og er í dag einn af allra bestu sóknarmönnum heims.

Stórglæsilegt mark hans gegn Wolfsburg var það fimmtánda sem hann gerir í deildinni og kom hann sér í fámennan hóp, en hann er nú með fimmtán mörk og 21 stoðsendingu eitthvað sem hefur ekki tekist síðan Jadon Sancho árið 2020.

Hann skoraði 17 mörk og gaf 17 stoðsendingar það tímabilið, en Sancho var sá fyrsti til að ná því síðan mælingar Opta hófust tímabilið 2004-2005.

Olise, sem er 24 ára gamall, hefur alls komið að 52 mörkum í öllum keppnum á tímabilinu. Hann er þá tveimur stoðsendingum frá því að jafna stoðsendingamet Lionel Messi frá 2011-2012.


Slapp