Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 18:50
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea fær fjórar milljónir frá Fulham útaf spiltíma Broja
Mynd: EPA
Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá því að Chelsea sé búið að tryggja sér greiðslu sem nemur um fjórum milljónum punda vegna lánssamnings Armando Broja.

Chelsea lánaði Broja til Fulham í byrjun febrúar með því skilyrði að hann myndi byrja ákveðið hlutfall leikja í byrjunarliðinu.

Broja hefur ekki tekist að vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá Fulham og er hann búinn að byrja það sjaldan í byrjunarliðinu að lánsákvæðið hefur verið brotið. Það vill svo til að Rodrigo nokkur Muniz byrjaði að raða inn mörkunum með Fulham um leið og Broja samdi við félagið og því lítið eftir af tækifærum fyrir Albanann unga.

Fulham þarf því að greiða 4 milljónir punda til Chelsea, en hinn 22 ára gamli Broja mun snúa aftur til Chelsea í sumar.

Broja kom inn af bekknum um síðustu helgi þegar Fulham tapaði 2-1 á útivelli gegn Wolves. Hann gaf stoðsendingu til að minnka muninn en það dugði ekki til.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner