Sky Sports greinir frá því að Barcelona var að senda sitt þriðja tilboð í Willian í sumar.
Chelsea hafnaði fyrstu tveimur tilboðunum en nú ákváðu spænsku risarnir að bjóða rúmlega 55 milljónir punda.
Willian hefur oft sýnt hvers hann er megnugur en fékk lítinn spilatíma eftir áramót og reifst við Antonio Conte, fyrrverandi stjóra Chelsea.
Talið er að Willian vilji yfirgefa enska boltann þrátt fyrir loforð frá Maurizio Sarri um byrjunarliðssæti.
Athugasemdir