Nígeríski bakvörðurinn Ola Aina átti magnaða stoðsendingu í 1-0 sigri gegn Búrúndí í fyrstu umferð Afríkukeppninnar.
Aina var leikmaður Chelsea þar til fyrir stuttu, þegar Torino ákvað að nýta kauprétt sem fylgdi lánssamningi hans.
Aina er 22 ára og kom við sögu í 6 keppnisleikjum hjá Chelsea. Hann var fastamaður í byrjunarliði Hull að láni 2017-18 og vann sér inn sæti í sterku liði Torino á nýliðnu tímabili.
Hann lagði sigurmarkið upp fyrir Odion Ighalo með glæsilegri hælsendingu sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Hægt er að setja spurningamerki við staðsetningu Ighalo þegar sendingin fer af stað en myndbandstækni verður ekki notuð fyrr en í 8-liða úrslitum keppninnar.
Guys checkout this backheel assist by Ola Aina. 🔥🔥🔥 pic.twitter.com/oP7cQKkGlw
— Vince™ (Sarrismo™) (@Blue_Footy) June 22, 2019
Athugasemdir