Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 28. mars 2024 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Haukar tryggðu sér toppsætið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar 4 - 2 Fjölnir
1-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('1 )
2-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('43 )
2-1 María Sól Magnúsdóttir ('70 )
3-1 Elma Dís Ólafsdóttir ('72 )
3-2 María Sól Magnúsdóttir ('76 )
4-2 Kristín Fjóla Sigþórsdóttir ('90 )

Haukar og Fjölnir áttust við í toppslag í riðlakeppni C-deildar kvenna í Lengjubikarnum í dag og úr varð skemmtileg viðureign.

Halla Þórdís Svansdóttir gerði gæfumuninn með tvennu í fyrri hálfleik til að gefa Haukum góða forystu.

María Sól Magnúsdóttir minnkaði muninn fyrir Fjölni í tvígang en í bæði skiptin tókst Haukum að skora næsta mark og urðu lokatölur því 4-2.

Haukar enda á toppi riðilsins með 10 stig á meðan Fjölnir á eftir að spila úrslitaleik við KH um annað sætið.
Athugasemdir
banner
banner
banner