Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. mars 2024 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Palhinha fékk frábært tilboð frá West Ham síðasta sumar
Palhinha er 28 ára gamall og skrifaði síðast undir samning við Fulham í september. Sá samningur gildir út júní 2028 en inniheldur ýmis ákvæði.
Palhinha er 28 ára gamall og skrifaði síðast undir samning við Fulham í september. Sá samningur gildir út júní 2028 en inniheldur ýmis ákvæði.
Mynd: Getty Images
Portúgalski miðjumaðurinn Joao Palhinha var nálægt því að yfirgefa Fulham í fyrra til að ganga til liðs við þýska stórveldið FC Bayern.

Bayern var þó ekki eina félagið sem komst nálægt því að krækja í Palhinha síðasta sumar, því West Ham United reyndi einnig að fá hann til sín.

Hamrarnir buðu Palhinha stóran samning í júlí en leikmaðurinn varð eftir hjá Fulham sem hækkaði launakjörin hans, áður en hann var næstum því farinn til Bayern.

„Ég fékk frábært tilboð frá West Ham en í kjölfarið af því ræddi ég við eiganda Fulham sem lofaði mér endurbættum samningi," sagði Palhinha meðal annars í viðtali við O Jogo.

„Ég bjóst aldrei við því að Bayern myndi bjóða í mig í lokaviku gluggans. Það var eins og að vera kýldur í magann þegar félagsskiptin gengu ekki upp."
Athugasemdir
banner
banner
banner