,,Það er mjög gott að vinna á útivelli eftir ósanngjarnt á síðustu sekúndu í fyrstu umferð, það er mjög sterkt að koma til baka og taka þrjú stig á útivelli," sagði Gunnar Már Elíasson fyrirliði BÍ/Bolungarvíkur eftir 1-2 sigur á Haukum í 2. umferð 1. deildar í dag.
,,Það er vetur fyrir vestan í augnablikinu svo við erum búnir að æfa gervigrasi alla vikuna, við kunnum þetta alveg. Það gekk mjög vel í dag og mér fannst við miklu grimmari og betri allan leikinn. Mér fannst þeir eiga lítið í okkur í dag."
Leikið var í miklu roki og 9 stiga hita á Ásvöllum í dag, Gunnar Már kom úr miklu verri aðstæðum á Ísafirði.
,,Þetta er eins og að koma í annað land, það er búið að snjóa í viku heima. Völlurinn hefur verið auður svo það hefur gengið ágætlega að æfa en það er búið að vera slæmt veður, snjór og rok."
Nánar er rætt við Gunnar Má í sjónvarpinu að ofan.






















