,,Við erum alveg sáttir við þetta fyrirfram en miðað við hvernig seinni hálfleikurinn spilaðist og þetta mark sem þeir skoruðu... en jújú, við getum alveg sætt okkur við þetta, en við værum sáttari við þrjú," sagði Brynjar Kristmundsson varnarmaður Víkings frá Ólafsvík eftir að hans menn sóttu stig á Akranes gegn toppliði ÍA í 1. deildinni í kvöld.
Brynjar fékk það hlutskipti að halda framherjanum öfluga Gary Martin niðri í leiknum og tókst mjög vel til í því.
,,Já, þetta gekk fínt, hann er mjög fljótur og mjög góður en ég er fljótur líka svo þetta gekk fínt," sagði Brynjar en Martin skipti svo yfir á hinn kantinn í seinni hálfleiknum.
,,Já, hann varð eitthvað hræddur og þá minnkaði þetta aðeins. En það eru allir leikmenn hjá þeim góður."
Nánar er rætt við Brynjar í sjónvarpinu að ofan.























