Simon Poulsen, vinstri bakvörður AZ Alkmaar og danska landsliðsins, er ánægður með liðsfélaga sína Kolbein Sigþórsson og Jóhann Berg Guðmundsson.
,,Þeir eru báðir frábærir leikmenn," sagði Poulsen við Fótbolta.net eftir landsleik Íslands og Danmerkur í fyrradag.
,,Kolbeinn er sterkur og skorar mikið af mörkum. Jóhann er fljótur, góður í að rekja boltann og hann er með góðar fyrirgjafir."
,,Þeir eru fyndir strákar. Kolli er nágranni minn og ég hitti hann oft. Þeir eru alltaf saman og eru að reyna að ná völdum í búningsklefanum en ég passa upp á að það takist ekki."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























