,,Þetta fer ekki í sögubækurnar. Þetta var ábyggilega ekki skemmtilegar leikur á að horfa fyrir áhorfendur. Allavega var þetta ekki mikið fyrir augað fyrir okkur þjálfarana," sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR eftir markalaust jafntefli gegn Gróttu í fyrstu deildinni í kvöld.
,,Það var mjög erfitt að opna Gróttuliðið í þessum leik. Þeir voru mjög skipulagðir og flottir varnarlega og við áttum í erfiðleikum með að opna þá," sagði Guðlaugur sem ætlar ekki að drífa sig í að horfa aftur á leikinn á myndbandi.
,,Ætli ég neyðist ekki til að gera það en ég huga að ég fresti því og geri það ekki í kvöld. Þetta var ekki skemmtilegur fótboltaleikur á að horfa, ég get verið sammála þér í því."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























