Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21-landsliðsins segir að allir séu klárir fyrir leikinn gegn Hvíta-Rússlandi á morgun en það er fyrsti leikur Íslands á Evrópumótinu.
Eyjólfur sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þar sem hann sagðist ekki vera búinn að ákveða byrjunarlið sitt á morgun.
Eyjólfur sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag þar sem hann sagðist ekki vera búinn að ákveða byrjunarlið sitt á morgun.
Óttast var að markahrókurinn Kolbeinn Sigþórsson yrði ekki leikfær á morgun en hann var rúmliggjandi í gær. Kolbeinn gat þó tekið þátt í báðum æfingum dagsins og verður því að öllum líkindum með.
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá brot úr blaðamannafundinum í dag.























