,,Þetta er solítið skrítið, maður er ánægður en samt ekki," sagði Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður U21 árs landsliðsins eftir 3-1 sigur á Dönum í dag en eitt mark hefði þurft til viðbótar til að komast áfram upp úr riðlinum.
,,Við vorum svo nálægt þess og vantaði eitt mark, en svona er þetta."
,,Svo fór Hvíta Rússland áfram sem er ótrúlegt, þeir eiga það ekkert skilið sko. Ég held við lítum til baka á þann leik hefðum við tekið eitt stig áfram þá værum við áfram."
,,En svona er þetta. Við vorum með þann leik í okkar höndum og klúðruðum því en við getum ekkert gert."
,,Þetta er einn besti fótboltaleikur sem íslenskt fótboltalið hefur spilað og við vorum frábærir, mikið af mörkum og mikið af færum."























