„Þetta var alvöru bikarleikur en mér fannst við slaka of mikið á," sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson leikmaður ÍBV eftir að liðið vann 3-2 útisigur gegn Val og komst þar með í 8-liða úrslit bikarkeppninnar.
Þórarinn telur að það hafi verið mistök að draga sig of langt til baka eftir að hans lið komst í 3-0. Réttast hefði verið að halda áfram að hamra á járninu heita.
„Við hefðum átt að gera það, þeir voru í vandræðum með þessa þrjá frammi hjá okkur."
Hann segir að markmið ÍBV sé einfalt í bikarnum, fara alla leið og taka titilinn. „Þetta er auðveldasta leiðin til að fá Evrópusæti."
Sjá má viðtalið við Þórarinn í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
























