,,Ég er gríðarlega sáttur,við unnum leikinn og erum komnir í átta liða úrslit,” sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarsson í samtali við Fótbolta.net eftir 2-0 sigur á FH í 16-liða úrslitum Valitors-bikarsins.
Grétar skoraði síðara mark KR í leiknum en Gunnar Örn Jónsson skoraði það fyrra.
,,Mér fannst við allan tímann vera betra, þeir voru yfir í baráttunni en við fengum færin en þeir ekki. Þeir áttu mögulega að fá eitt víti en við áttum líka að fá það .”
,,Það er kannski kominn einhver hefð, liðið er búið að spila lengi saman og er farið að þekkjast gríðarlega vel. Við erum farnir að spila boltanum á milli manna og hver einasti maður þekkir sitt hlutverk.”
Nánar er rætt við Grétar í sjónvarpinu hér að ofan.
























