Úttvarpsþátturinn Fótbolti.net var á dagskrá á X-inu í gær og er nú hægt að nálgast upptöku af honum.
Hitað var upp fyrir úrslitaleik Ítalíu og Spánar á Evrópumótinu sem fram fer á í kvöld. Kolbeinn Tumi Daðason íþróttafréttamaður mætti í spjall og valdi úrvalslið mótsins að sínu mati.
Garðbæingurinn Guðjón Baldvinssson var í símaviðtali en hann hefur verið að raða inn mörkum fyrir Halmstad í sænsku B-deildinni.
Farið var yfir gang mála í Pepsi-deildinni og rætt við Pape Mamadou Faye, leikmann Grindavíkur.
Þá var staða mála hjá skoska félaginu Rangers útskýrð fyrir hlustendum en Brian Gilmour, leikmaður KA, var í símaviðtali. Gilmour lék með unglingaliði Rangers á sínum tíma.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þættinum hér á Fótbolta.net.
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.

