Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir ennþá óljóst hvenær markvörðurinn Alisson verður klár í slaginn á nýjan leik.
Alisson tognaði illa á kálfa í fyrsta leik tímabilsins gegn Norwich en hann er byrjaður í rólegum æfingum.
Alisson tognaði illa á kálfa í fyrsta leik tímabilsins gegn Norwich en hann er byrjaður í rólegum æfingum.
„Við borðuðum hádegismat saman og hann segist vera að koma til. Þetta voru mjög alvarleg meiðsli og við vitum ekki alveg stöðuna. Það hefur enginn tímarammi verið settur," sagði Klopp.
Miðjumaðurinn Naby Keita hefur heldur ekki spilað síðan í fyrstu umferðinni gegn Norwich en hann hefur líka verið meiddur.
„Það er stutt í Naby. Hann gæti byrjað að æfa þegar við komum til baka frá Napoli í næstu viku," sagði Klopp.
Athugasemdir