Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 10. mars 2024 12:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Aston Villa og Tottenham: Pedro Porro klár í slaginn
Mynd: EPA

Það eru þrjár breytingar á liði Aston Villa sem gerði markalaust jafntefli gegn Ajax í Sambandsdeildinni í vikunni.


Leon Bailey, John McGinn og Matty Cash koma inn í liðið á kostnað Moussa Diaby, Morgan Rogers og Tim Iroegbunam.

Þá eru einnig þrjár breytingar á liði Tottenham frá 3-1 sigri gegn Crystal Palace um síðustu helgi. Pedro Porro hefur jafnað sig af meiðslum og kemur inn fyrir Emerson Royal.

Rodrigo Bentancur og Timo Werner setjast á bekkinn og Pape Sarr og Brennan Johnson koma inn í liðið.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Lenglet, Torres, Digne, McGinn, Luiz, Tielemans, Watkins, Bailey.

Tottenham: Vicario, Porro, Romero, van de Ven, Udogie, Bissouma, Sarr, Kulusevski, Maddison, Johnson, Son.


Athugasemdir
banner
banner
banner