Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 12. mars 2024 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimaleikurinn vinnur Glasgow film festival
Kári Viðarsson og Smári Gunnarsson.
Kári Viðarsson og Smári Gunnarsson.
Mynd: Eoin Carey
Fagnið.
Fagnið.
Mynd: Eoin Carey
Mynd: Eoin Carey
Íslenska fótbolta heimildarmyndin Heimaleikurinn var heiðruð á kvikmyndahátíðinni í Glasgow þar sem hún hlaut Áhorfendaverðlaunin á loka athöfn í Glasgow Film Theatre.

Áhorfendaverðlaunin eru aðal verðlaun hátíðarinnar og var Heimaleikurinn tilnefnd ásamt sjö öðrum myndum á stjörnum príddri hátíðinni. Myndin var eina heimildarmyndin í flokki tilnefndra en meðal þeirra kvikmynda sem einnig voru tilnefndar var nýjasta mynd Viggo Mortensen The Dead don't Hurt.

Heimaleikurinn er hjartahlý mynd sem fjallar um fljótfærna tilraun Kára Viðarssonar til að uppfylla draum föður síns; að safna í lið heimamanna til að spila langþráðan heimaleik fyrir á fótboltavelli sem hann lét byggja á Hellissandi 25 árum áður.

Stjörnur myndarinnar úr liði Reynis á Hellissandi fylgdu myndinni einnig eftir, skoskum kvikmyndagestum til mikillar gleði.

Heimaleikurinn var sýnd fyrir fullu húsi tvisvar í Glasgow og skipuleggjendur hátíðarinnar tilkynntu að áhorfendur hefðu samanlagt gefið myndinni 4.8 af 5 í einkunn, hæstu einkunn sem þau hafa séð í tuttugu ára sögu hátíðarinnar sem er ein sú stærsta á Bretlandseyjum.

Verðlaunin í Glasgow eru þriðju áhorfendaverðlaun Heimaleiksins sem hlaut einnig dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu heimildarmyndahátíðinni í Búdapest. Heimaleikurinn er tilnefnd í í flokki heimildarmyndar ársins á Edduverðlaununum.

Heimaleikurinn
Framleiðendur: Stephanie Thorpe, Heather Millard, Elfar Aðalsteins og Freyja Kristinsdóttir

Leikstjórar: Smári Gunnarsson og Logi Sigursveinsson

Helstu söguhetjur: Kári Viðarsson, Viðar Gylfason og Freydís Bjarnadóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner