Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. mars 2024 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kane meiddur og verður ekki með gegn Brasilíu
Mynd: EPA

Enska landsliðið verður án Harry Kane þegar liðið mætir brasilíska landsliðinu í æfingaleik á Wembley á morgun.


Kane meiddist í leik Bayern Munchen gegn Darmstadt á dögunum þar sem hann skoraði og lagði upp í 5-2 sigri.

Gareth Southgate þjálfari enska landsliðsins greindi einnig frá því að Cole Palmer og Jordan Henderson verði fjarverandi á morgun.

„Það verður enginn Harry Kane, Jordan Henderson eða Cole Palmer á morgun. Ég myndi segja að Palmer og Henderson eigi meiri möguleika að spila gegn Belgíu en Kane. Mjög tæpt að hann verði klár," sagði Southgate.

Liðið mætir Belgíu einnig á Wembley í æfingaleik á þriðjudaginn.


Athugasemdir
banner
banner
banner