Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. mars 2024 21:52
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild kvenna: Chelsea í undanúrslit
Mayra Ramirez skoraði eina mark Chelsea í leiknum
Mayra Ramirez skoraði eina mark Chelsea í leiknum
Mynd: Getty Images
Chelsea 1 - 1 Ajax (4-1, samanlagt)
1-0 Mayra Ramirez ('33 )
1-1 Chasity Grant ('65 )

Chelsea tryggði sér farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í kvöld þrátt fyrir að gera 1-1 jafntefli við Ajax í Lundúnum.

Enska liðið var í þægilegri stöðu fyrir leikinn í kvöld en það vann fyrri leikinn 3-0 í Hollandi.

Mayra Ramirez skoraði eina mark Chelsea á 33. mínútu en Chasity Grant jafnaði fyrir Ajax þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum.

Fleiri urðu mörkin ekki og Chelsea örugglega áfram í undanúrslit samanalgt, 4-1.

Chelsea og Lyon hafa bæði tryggt sig áfram en á morgun kemur í ljós hvaða fjögur lið verða þar. Barcelona spilar við Brann á meðan Paris Saint-Germain mætir Häcken frá Svíþjóð.
Athugasemdir
banner
banner
banner