Jean-Michel Aulas, forseti Lyon, hefur greint frá því að Manchester United hafi verið tilbúið að greiða meira fyrir Karim Benzema en Real Madrid á sínum tíma.
Real Madrid keypti Benzema á 35 milljónir punda árið 2009 en á þeim tíma hafði Manchester United líka áhuga.
Real Madrid keypti Benzema á 35 milljónir punda árið 2009 en á þeim tíma hafði Manchester United líka áhuga.
„Þegar Karim var á förum frá Lyon þá vorum við með tvö tilboð: Manchester United og Real Madrid," sagði Aulas.
„Karim kom að hitta og það var traust á milli okkar. Hann sagði: 'Draumur minn er að spila með Real Madrid."
„Hann fór því til Real Madrid á lægri upphæð heldur en ef hann hefði farið til Manchester United."
Athugasemdir