Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. mars 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta hvetur Southgate til að velja Ramsdale
Mynd: EPA

Aaron Ramsdale mun verja mark Arsenal í kvöld þegar liðið mætir Brentford þar sem David Raya er á láni hjá félaginu frá Brentford.


Raya gekk til liðs við Arsenal í sumar og hefur tekið stöðuna af Ramsdale en sá síðarnefndi hefur aðeins komið við sögu í tíu leikjum á tímabilinu, þar af fimm í úrvalsdeildinni.

Þrátt fyrir það hvetur Mikel Arteta stjóri Arsenal Gareth Southgate til að velja Ramsdale í landsliðshóp Englands fyrir EM í sumar.

„Ég veit ekki hvernig hann hugsar þetta en ef ég skoða þetta frá mínu sjónarhorni myndi ég dæma Ramsdale af því hvað hann hefur gert síðsutu 2-3 tímabil og séð stöðugleikann hans og gæði," sagði Arteta.

England hefur leik á EM í Þýskalandi þann 15. júní en síðasti æfingaleikur liðsins fyrir mótið verður gegn Íslandi þann 7. júní á Wembley.


Athugasemdir
banner
banner
banner