Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. mars 2024 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Forseti Real Madrid: Hver er Mbappe?
Mynd: EPA

Florentino Perez forseti Real Madrid var í stuði þegar hann hitti stuðningsmenn félagsins á förnum vegi.


Einn stuðningsmaður félagsins hvatti hann til þess að næla í Kylian Mbappe sóknarmann PSG og Alphonso Davies varnarmann Bayern Munchen.

„Því þá munum við vinna allt," sagði stuðningsmaðurinn.

„Hver er Mbappe? Hver er Davies?," sagði Perez léttur í bragði.

Mbappe og Davies hafa lengi verið orðaðir við félagið. Sögusagnir segja að Mbappe hafi þegar náð samkomulagi við félagið en hann er búinn að gefa út að hann muni ekki vera áfram í herbúðum PSG þegar samningur hans við franska félagið rennur út í sumar.


Athugasemdir
banner