Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. mars 2024 12:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gusto um Thiago Silva: Hann er eins og pabbi minn
Mynd: Getty Images

Malo Gusto leikmaður Chelsea er gríðarlega þakklátur að fá að spila með reynsluboltanum Thiago Silva.


Thiago Silva hefur mikla reynslu en hann er orðinn 39 ára. Gusto var til viðtals á heimasíðu Chelsea þar sem hann bar Silva saman við föður sinn.

„Hann er goðsögn. Hann er eins og pabbi minn, hann hefur hjálpað liðinu mikið því hann hefur mikla reynslu, spilað mikinn fótbolta í stórum keppnum. Það er mín ánægja að spila með honum hjá Chelsea," sagði Gusto.

„Þegar ég geri mistök segir hann mér það eins og pabbi minn, það hefur hjálpað mér mikið. Hann hjálpar með smáatriðin en mér finnst fótboltinn snúast um smáatriðin."


Athugasemdir
banner
banner