Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp: Guardiola er besti stjóri í heimi
Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp stjóri Liverpool segir að hans helsti keppnautur, Pep Guardiola, stjóri Man City, sé besti stjóri í heimi.


Liverpool er með eins stigs forystu á City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en liðin mætast á Anfield á morgun.

Klopp hrósaði Guardiola í hástert á fréttamannafundi í aðdraganda leiksins.

„Pep er besti stjóri í heimi, í minni tíð, hann er framúrskarandi stjóri. Hvernig hann hafði áhrif á fótboltann. Hann hefur unnið marga titla en hagar sér eins og hann hafi aldrei unnið neitt," sagði Klopp.


Athugasemdir
banner
banner