Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. mars 2024 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Xavi: Allir tapa í samanburði við Messi
Mynd: Getty Images

Lamine Yamal var hetja Barcelona í gær þegar hann skoraði glæsilegt sigurmark gegn Mallorca.


Margir báru hann saman við Lionel Messi í kjölfarið, þar á meðal Javier Agurrie stjóri Mallorca.

„Ég þurfti bara fimm mínútur til að segja að Lionel Messi væri mús. Lamine Yamal spilar líka eins og mús. Hann lítur líka þannig út, ég veit að félagið vinnur vel með unga leikmenn. Ef hann heldur þessu áfram mun hann færa Barcelona mikla hamingju," sagði Aguirre.

Xavi stjóri Barcelona er ekki hrifinn af þessum samanburði.

„Allir tapa í samanburði við Messi. Við erum að tala um besta leikmann í sögu íþróttarinnar, það á ekki að bera neinn saman við hann," sagði Xavi.

Xavi var ekki ánægður með heildarframmistöðu Yamal í gær.

„Hann var ekkert sérstakur einn á einn og var ekki að eiga sinn besta dag en hann skoraði frábært mark. Hann gerði gæfumuninn aftur með marki sem hann bjó sjálfur til," sagði Xavi.


Athugasemdir
banner
banner
banner