Mohamed Salah leikmaður Liverpool verður ekki með egypska landsliðinu í komandi landsleikjum þar sem hann er að jafna sig af meiðslum.
Egypska sambandið var allt annað en sátt með hegðun Liverpool sem bað sambandið um að velja Salah ekki í landsliðshópinn í komandi verkefni til að leyfa honum að jafna sig.
Salah spilaði sinn fyrsta leik í vikunni gegn Sparta Prag síðan hann meiddist í Afríkukeppninni í janúar.
Egypska sambandið hefur nú samþykkt beiðni Liverpool og mun hann því vera í herbúðum Liverpool til að undirbúa endurkomu sína almennilega.
It’a official now. Mo Salah ruled out of Egypt squad ????? https://t.co/m3d9KnLMc3
— Ismael Mahmoud - ??????? ????? (@ismaeelmahmoudd) March 10, 2024
Athugasemdir