Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 12. mars 2024 21:44
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Þriðji sigur Middlesbrough í röð
Riley McGree fagnar sigurmarki sínu
Riley McGree fagnar sigurmarki sínu
Mynd: Getty Images
Birmingham 0 - 1 Middlesbrough
0-1 Riley McGree ('17 )

Lærisveinar Michae Carrick í Middlesbrough unnu þriðja leik sinn í röð er liðið lagði Birmingham að velli, 1-0, á St. Andrews-leikvanginum í Birmingham í ensku B-deildinni í kvöld.

Eina mark leiksins gerði Riley McGree á 17. mínútu leiksins. Luke Ayling vann boltann á vallarhelmingi Birmingham og sendi boltann á McGree sem skoraði með góðu vinstri fótar skoti. Fyrsta mark hans síðan í september en alls er hann með sex mörk á tímabilinu.

Stuðningsmenn Birmingham bauluðu á sína leikmenn þegar gengið var til búningsherbergja.

Gestirnir i Boro náðu að halda þetta út í þeim síðari og var það merkilegasta sem gerðist líklega þegar Andy Davies, dómari leiksins, þurfti skiptingu. Fjórði dómari leiksins, Jeremy Simpson, tók við flautunni.

Middlesbrough sætti sig við þetta eina mark og hélt út. Lokatölur 1-0 og þriðji sigur liðsins í röð. Boro er í 9. sæti með 53 stig en Birmingham áfram í vandræðum í botnbaráttunni með aðeins 39 stig í 21. sæti.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 44 30 4 10 86 39 +47 94
2 Leeds 45 27 9 9 80 41 +39 90
3 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
4 Southampton 44 25 9 10 85 61 +24 84
5 West Brom 44 20 12 12 67 44 +23 72
6 Norwich 44 21 9 14 77 61 +16 72
7 Hull City 44 19 12 13 65 56 +9 69
8 Coventry 43 17 12 14 68 55 +13 63
9 Middlesbrough 44 18 9 17 64 60 +4 63
10 Preston NE 44 18 9 17 56 61 -5 63
11 Cardiff City 44 19 5 20 50 61 -11 62
12 Bristol City 44 16 11 17 51 47 +4 59
13 Sunderland 44 16 8 20 52 51 +1 56
14 Swansea 44 15 11 18 57 62 -5 56
15 Watford 44 12 17 15 59 58 +1 53
16 QPR 45 14 11 20 45 57 -12 53
17 Millwall 44 14 11 19 43 55 -12 53
18 Stoke City 44 13 11 20 44 60 -16 50
19 Blackburn 44 13 10 21 58 74 -16 49
20 Plymouth 44 12 12 20 58 69 -11 48
21 Sheff Wed 44 13 8 23 39 68 -29 47
22 Birmingham 44 12 10 22 48 64 -16 46
23 Huddersfield 44 9 17 18 47 74 -27 44
24 Rotherham 44 4 12 28 32 85 -53 24
Athugasemdir
banner