Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. mars 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Porto: Arteta móðgaði fjölskyldu mína
Sergio Conceicao
Sergio Conceicao
Mynd: EPA
Sergio Conceicao, þjálfari Porto, sakar Mikel Arteta um að hafa móðgað fjölskyldu sína með orðum sínum í leik Arsenal og Porto á Emirates í gær.

Portúgalinn var allt annað en sáttur með framferði Arteta í leiknum og heldur hann því fram að Arteta hafi sagt niðrandi hluti um fjölskylumeðlim.

„Arteta snéri sér að bekknum í miðjum leik og móðgaði fjölskyldu mína á spænsku. Ég sagði honum að manneskjan sem hann væri að móðga væri ekki lengur á meðal okkar,“ sagði Conceicao.

„Leyfum honum að hafa áhyggjur af því hvernig á að þjálfa liðið, sem hefur næg gæði til að spila mun betur.“ sagði hann ennfremur.

Mikel Arteta og Arsenal hafa neitað fyrir þetta en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Conceicao tekur orðum kollega sinna persónulega.

Conceicao hefur áður sakað Pep Guardiola og Thomas Tuchel um að hafa móðgað sig í leikjum í Meistaradeildinni. Guardiola átti að hafa tala illa um Portúgal en ummæli Tuchel eru óljós.


Athugasemdir
banner
banner