Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: ÍH sigraði á Húsavík
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Völsungur 2 - 4 ÍH
0-1 Hafrún Birna Helgadóttir ('3 )
1-1 Anna Guðný Sveinsdóttir ('18 )
2-1 Berta María Björnsdóttir ('21 )
2-2 Hera Dís Atladóttir ('45 )
2-3 Nína Hildur Magnúsdóttir ('54 )
2-4 Eva Marín Sæþórsdóttir ('65 )

Völsungur og ÍH áttust við í C-deild Lengjubikars kvenna í dag og úr varð spennandi slagur þar sem liðin skiptust á að taka forystuna í fyrri hálfleik.

ÍH tók forystuna snemma leiks en Húsvíkingar sneru stöðunni við og leiddu 2-1 allt þar til undir lok fyrri hálfleiks, þegar Hera Dís Atladóttir jafnaði metin.

Nína Hildur Magnúsdóttir og Eva Marín Sæþórsdóttir skoruðu í síðari hálfleik til að tryggja sigur fyrir ÍH, sem er með sex stig eftir þrjár umferðir.

Völsungur er með þrjú stig eftir tvær umferðir og á eftir að spila við Augnablik og KR.

Einherji og Augnablik áttust einnig við í dag en úrslit úr þeirri viðureign hafa ekki borist.
Athugasemdir
banner